Tveir leikir fara fram í Bestu deild kvenna í kvöld. Það er risa leikur á Origo vellinum á Hlíðarenda. Svo er níu stiga leikur í Mosfellsbæ.
Topplið Vals fær Breiðablik í heimsókn en Blikar þurfa nauðsynlega á sigri að halda. Valur er með sex stiga foyrstu á Breiðablik þegar fjórar umferðir eru eftir.
Á sama tíma mætast Afturelding og KR í Mosfellsbæ. KR er fjórum stigum frá öruggu sæti á meðan Afturelding er sex stigum frá öruggu sæti.
Afturelding á eftir að mæta bæði Val og Breiðablik.
þriðjudagur 13. september
Besta-deild kvenna
19:15 Afturelding-KR (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 Valur-Breiðablik (Origo völlurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir