Fotbolti.net
13.09.23 - 14:40
Elvar Geir Magnússon

Þorsteinn Már forstjóri Samherja heiðursgestur á bikarúrslitaleiknum

Þorsteinn Már Baldvinsson.

Þorsteinn Már Baldvinsson.

Canon

Mynd: KA

Mjólkurbikarinn
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja verður heiðursgestur KA á úrslitaleik Mjólkurbikars karla á laugardaginn. Frá þessu er greint á heimasíðu KA en Akureyrarliðið leikur gegn Víkingi í úrslitaleiknum.

Samherji er eitt af umfangsmestu fyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi og segir á heimasíðu KA að Þorsteinn sé einarður stuðningsmaður KA og hafi fylgt félaginu frá unga aldri, bæði sem keppnismaður og stuðningsmaður.
„Mér þykir afskaplega vænt um að vera heiðursgestur KA á þessum stóra degi og ætla að njóta dagsins eins og allt stuðningsfólk félagsins," segir Þorsteinn.

„Ef ég man rétt er þetta fyrsti bikarúrslitaleikur KA í knattspyrnu í nítján ár og þess vegna hvet ég alla stuðningsmenn til að mæta í Laugardalinn og hvetja strákana okkar áfram. Bikarúrslitaleikir eru alltaf skemmtilegir og staðreyndin er sú að öflugur stuðningur skiptir gríðarlega miklu máli og getur jafnvel skipt sköpum."

„Ég er sannfærður um að bikarinn fer norður. Í hálfleik verður staðan 1-1 og KA menn gera svo út um leikinn í síðari hálfleik. Þegar dómarinn flautar til leiksloka stendur 1-3 á markatöflunni í Laugardalnum. KA sem sagt vinnur leikinn með þremur mörkum gegn einu og um kvöldið verður svo víða dansað og fagnað. Ég segi einfaldlega, Áfram KA!"

Bikarúrslitaleikurinn verður klukkan 16 á laugardag, á Laugardalsvelli.

Heimild: Heimasíða KA

Laugardalsvöllur.

Laugardalsvöllur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.