Fotbolti.net
13.10.13 - 11:23
Hafliði Breiðfjörð

Hermann Hreiðarsson hættur með ÍBV (Staðfest)

Hermann Hreiðarsson er hættur með lið ÍBV.

Hermann Hreiðarsson er hættur með lið ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hermann Hreiðarsson er hættur þjálfun ÍBV en þetta var staðfest á vef félagsins nú í morgunn.

Ástæðurnar eru þar sagðar persónulegar en ekki útlistaðar frekar. Yfirýsingu ÍBV má sjá hér að neðan. Þar með eru tvö lið þjálfaralaus í deildinni því Logi Ólafsson var rekinn frá Stjörnunni fyrr um helgina.
Hermann Hreiðarsson lætur af störfum
Hermann Hreiðarsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu af persónulegum ástæðum.

Hermann tók við ÍBV fyrir ári síðan, skilaði liðinu í 6. sæti deildarinnar og komst í 2. umferð Evrópukeppninnar.


Knattspyrnudeild ÍBV þakkar Hermanni fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

F.h. knattspyrnudeildar ÍBV
Valur Smári Heimisson, framkvæmdastjóri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.