Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 13. október 2019 22:28
Brynjar Ingi Erluson
Biður Manchester United að sækja Zlatan
Zlatan Ibrahimovic spilaði tvö tímabil með Manchester United
Zlatan Ibrahimovic spilaði tvö tímabil með Manchester United
Mynd: Getty Images
Clayton Blackmore, fyrrum leikmaður Manchester United, kallar eftir því að félagið fái Zlatan Ibrahimovic aftur til félagsins á frjálsri sölu í janúarglugganum.

Zlatan er 38 ára gamall en er þrátt fyrir það búinn að skora 30 mörk í 29 leikjum fyrir Los Angeles Galaxy í MLS-deildinni á tímabilinu og kom liðinu í úrslitakeppnina.

Hann hefur spilað með Galaxy síðustu tvö tímabil og gert vel en hann kom frá Manchester United. Zlatan skoraði 29 mörk í 53 leikjum fyrir United.

Það hefur lítið gengið hjá United í byrjun leiktíðar og er liðið í 12. sæti með aðeins 9 stig eftir átta leiki. Blackmore kallar eftir því að fá Zlatan aftur til félagsins.

„Okkur vantar öflugan sóknarmann og það eina sem getur bjargað okkur á þessu tímabili er Zlatan. Hann er búinn að tala um að vilja snúa aftur hingað," sagði Blackmore.

„Hann er hávaxinn, með svarta beltið í karate og getur barist við hvern sem er. Hann er enn að skora mörk og við höfum losað okkur við fullt af góðum sóknarmönnum. Wayne Rooney, Robin van Persie og margir fleiri fóru á endanum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner