Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Dilyan Kolev framlengir við Einherja (Staðfest)
Dilyan Kolev við undirskrift í gær
Dilyan Kolev við undirskrift í gær
Mynd: Einherji.net
Dilyan Kolev mun þjálfa kvennalið Einherja á næsta tímabili en hann framlengdi samning sinn við félagið í gærkvöldi. Þetta kemur fram í frétt Einherja.net.

Kolev hefur verið búsettur á Vopnafirði frá 2015 og leikið með meistaraflokki karla en hann þjálfaði kvennaliðið árið 2017 og 2018 áður en hann hætti eftir tímabilið.

Hann tók aftur við liðinu fyrir sumarið og var mikil ánægja með hans störf.

Kolev skrifaði því undir eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið í gær.

Einherji hafnaði í 9. sæti í 2. deild á nýafstöðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner