Fotbolti.net
13.11.15 - 17:24
Ívan Guðjón Baldursson

Brynjar Kristmunds kominn til Fram (Staðfest)

Brynjar Kristmunds kominn til Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bakvörðurinn Brynjar Kristmundsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Fram.

Brynjar lék með Ólafsvíkingum fyrri part sumars og var þar í byrjunarliðinu. Í ágúst yfirgaf Brynjar Ólsara til að spila með Volda IT í norsku D-deildinni þar sem hann skoraði fjögur mörk í tíu leikjum.
Nú er Brynjar kominn aftur til landsins og mun spila með Fram, sem enduðu sex stigum fyrir ofan fallsæti í 1. deildinni í sumar.

Brynjar er aðeins 23 ára gamall en á yfir 144 leiki að baki í deild og bikar á Íslandi, þar af 28 í efstu deild með Ólafsvík og Val.

Brynjar er þriðji leikmaðurinn til að ganga í raðir Framara á skömmum tíma eftir komu Hlyns Atla Magnússonar og Atla Fannars Jónssonar fyrr í nóvember.

Heimild: Fram.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.