13.11.15 - 22:02
Arnar Geir Halldórsson
Twitter - Hannes þarf flýtimeðferð á Reykjalundi

Einhverjir söknuðu Hannesar í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi heillaði

Mynd: Getty Images

Einhverjir söknuðu Hannesar í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenskir knattspyrnuáhugamenn tóku virkan þátt í umræðunni á Twitter yfir leik Póllands og Íslands sem lauk nú rétt í þessu. Hér fyrir neðan má sjá brot af því besta.
Við minnum lesendur á að vera með okkur gegnum Twitter, kassamerkið #fotboltinet hjálpar okkur að finna færslurnar sem máli skipta.
Við minnum lesendur á að vera með okkur gegnum Twitter, kassamerkið #fotboltinet hjálpar okkur að finna færslurnar sem máli skipta.
Magnús Már Einarsson
Aldrei séð 58 þúsund manns þegja eins fljótt og þegar Gylfi smurði hann. Þvílíkt víti! #fotboltinet
Hjalti Þór Hreinsson
Öruggasta víti sögunnar (staðfest).
Henry Birgir
Óþolandi þegar menn taka svona séns í vítunum.
Hlynur Magnússon
Þetta er íslenska landsliðið eins og maður þekkir það. Einbeittir, yfirvegaðir og Grimmir, með stóru G-i. #fotboltinet
Sigurbergur Elísson
Djöfull var þetta vel klárað hjá Alfreð, enda með 19 í finishing í Football Manager
Kristján Óli Sigurðsson
Haukur Harðar sagði bara í alvörunni... \"Elmar Óheppin i hreinsunni\". Hættu þessu bulli þó þetta sé vinur þinn. Ömurleg hreinsun.
Jóhannes Valgeirsson
Gulli @GulliGull1 væri búinn að verja 2 af þessum mörkum ! Aldur skiptir engu ef þú ert nógu góður ! #fotboltinet
Guðmundur Friðbjarnason
Við skulum bara láta Aron spila allar mínútur eftir þennan leik. Hjartað í liðinu #fotboltinet
Magnús Sigurbjörnsson
Arnór Ingvi með frábært debut. Gott fyrir breiddina. Velkominn! #fotboltinet
Guðmundur Brynjólfsson
Arnór spilaði sig inn, Theódór út - Hannes þarf að fá flýtimeðferð á Reykjalundi og komast aftur í markið. #fotboltinet
Tómas Þór Þórðarson
Strákunum tíðrætt um sigurhefðina og koma á skriði inn á EM. Fjórir leikir án sigurs núna. Góður fyrri half en seinni schelfing.
Ingvi Þór Sæmundsson
Aron Einar fer út af í hálfleik og Ísland fær á sig 4 mörk í seinni hálfleik. Engin tilviljun þar á ferðinni. Svo ofboðslega mikilvægur.
Klassa taktík að fara á bókasafnið til að læra, eingöngu til að fá frið til að sjá leikinn #fotboltinet #POLISL pic.twitter.com/rrkaA9E1UT
— Orri Freyr Rúnarsson (@OrriFreyr) November 13, 2015
Arnór Ingvi heillaði

Mynd: Getty Images
