Íslenska landsliðið er mætt til Istanbul fyrir leikinn gegn Tyrkjum í undankeppni EM á morgun. Íslenska liðið hefur verið við æfingar í Antalya í Tyrklandi en liðið flaug til Istanbúl í morgun.
Íslenska liðið flaug til Istanbúl með leiguflugi og gekk ferðalagið mjög vel.
Þegar íslenskir landsliðsmenn komu til Antalya um helgina þurftu sumir þeirra að bíða lengi til að komast í gegnum vegabréfaeftirlit.
Tyrkir voru ósáttir fyrir fyrri leikinn í júní og vildu meina að alltof langan tíma hefði tekið að koma liðinu í gegnum Leifsstöð.
Í Istanbul gekk allt hins vegar hratt fyrir sig hjá íslenska liðinu. Gríðarleg öryggisgæsla var á flugvellinum og lögreglumenn mynduðu göng á flugvellinum. Hópur tyrkneskra fjölmiðlamanna beið einnig eftir íslenska liðinu á flugvellinum.
Íslenska liðið fer á æfingu á keppnisvellinum klukkan 18:00 að staðartíma eða 15:00 að íslenskum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir