Miðjumaðurinn reyndi Riccardo Montolivo hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 34 ára að aldri.
Montolivo spilaði með Atalanta, Fiorentina og AC Milan á ferli sínum en samningur hans hjá síðarnefnda félaginu rann út síðastliðið sumar.
Montolivo spilaði með Atalanta, Fiorentina og AC Milan á ferli sínum en samningur hans hjá síðarnefnda félaginu rann út síðastliðið sumar.
Montolivo var ósáttur við að fá ekki nýjan samning hjá AC Milan en hann fékk ekki tækifæri á að kveðja stuðningsmenn félagisns.
„Það er hægt að segja að þeir (Milan) hafi náð að neyða mig í að hætta. Ég fékk ekki einu sinni tækifæri til að segja bless við stuðningsmennina eftir sjö ár," sagði Montolivo.
„Ég ætla að halda áfram að búa í Milan með fjölskyldu minni. Ég veit ekki hvað ég geri núna. Ég þarf að hugsa um það."
Athugasemdir