Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 13. nóvember 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ráðist inn til Zielinski og Allan - Insigne ekki hræddur
Mynd: Getty Images
Það er allt í steik hjá Napoli um þessar mundir og hafa fótboltabullur verið að hræða leikmenn liðsins með að brjótast inn til þeirra.

Fyrst var brotist inn til brasilíska miðjumannsins Allan og síðar til hins pólska Piotr Zielinski.

Il Corriere dello Sport og fleiri miðlar greindu frá því að Lorenzo Insigne væri smeykur um að hann yrði næstur og að eiginkona hans hafi flúið borgina til að forðast bullurnar.

„Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki hræddur við að búa í minni eigin borg eins og ég las á internetinu. Ég er frá Napoli og er stoltur af því, ég og kona mín munum aldrei flýja þessa borg."

Napoli hefur ekki farið nógu vel af stað í haust og er óvænt í sjöunda sæti ítölsku deildarinnar, 13 stigum eftir toppliði Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner