Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. nóvember 2020 21:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gomez til stuðningsmanna: Þetta er hluti af áætlun Guðs
Mynd: Getty Images
Joe Gomez, leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, hefur tjáð sig í kjölfar alvarlegra hnémeiðsla sem hann lenti í fyrr í þessari viku. Óttast er að Gomez verði frá út þessa leiktíð vegna meiðslanna. Gomez fór í aðgerð í gær og sagði í tilkynningu Liverpool að allt hefði gengið vel í aðgerðinni.

„Leiðin til baka er þegar hafinn," skrifaði Gomez á Twitter. „Ég hef verið á þessum stað áður, ég veit hvað þarf til og ég mun koma betri og sterkari til baka."

„Ég er að sjálfsögðu svekktur en þetta er hluti af áætlun Guðs og ég trúi að það sé ástæða fyrir öllu sem gerist. Ég vil þakka öllum fyrir kveðjurnar og stuðningsskilaboðin."

„Ég er einbeittur á endurhæfinguna og mun styðja liðsfélagana eins og ég get þar til ég sný til baka. Sjáumst fljótlega."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner