13.11.21 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gunnar Örvar í Hauka (Staðfest)

Mynd: Haukar

Mynd: Haukar
Gunnar Örvar Stefánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka.
Gunnar er uppalinn í KA en flutti ungur að árum til Hafnarfjarðar og lék með Haukum upp nokkra yngri flokka áður en hann flutti aftur norður í 2. flokki og lék með uppeldisfélagi sínu, KA.
Hann er mjög spenntur að hitta fyrir gamla félaga hjá Haukum.
„Ég er mjög ánægður að vera kominn aftur heim í Hauka og er staðráðinn í því að hjálpa liðinu að komast upp um deild. Einnig verður frábært að vinna aftur með Atla sem og að spila aftur með nokkrum gömlum liðsfélögum frá því í yngri flokkunum," sagði Gunnar við undirskriftina.
KA maðurinn Atli Sveinn Þórarinsson er þjálfari Hauka. Hann er mjög spenntur að fá Gunnar til liðsins.
„Hann er frábær í loftinu og með gríðarlegan líkamlegan styrk og þar fyrir utan góður slúttari. Geggjaður liðsstyrkur fyrir okkur og vopnabúrið verður allt annað með þennan leikmann innanborðs."