Fotbolti.net
13.12.15 - 08:00
Elvar Geir Magnússon

Björn Pálsson áfram hjá Víkingi Ó. (Staðfest)

Björn Pálsson áfram hjá Víkingi Ó. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Ólafsvík og Björn Pálsson hafa skrifað undir árs framlengingu á samning Björns sem gildir út keppnistímabilið 2016.
Björn kom fyrst til Víkings 2011 og hefur spilað með liðinu 125 leiki og gert 12 mörk.

Eftir að hann hjálpaði liðinu að vinna 1. deildina í sumar var óvissa um framtíð hans í boltanum vegna atvinnu hans.

En nú er ljóst að Björn tekur slaginn með Ólafsvíkingum í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Víkingar hafa bætt við sig einum leikmanni frá síðasta tímabili en Þorsteinn Már Ragnarsson kom aftur til félagsins frá KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.