Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 13. desember 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Fellaini heldur sambandi við Mourinho - Ekki á leið til Tottenham
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, miðjumaður Shandong Luneng í Kína, segist ekki vera á leið til Tottenham þrátt fyrir sögusagnir þess efnis.

Fellaini spilaði undir stjórn Jose Mourinho hjá Manchester United og þeir eiga ennþá í góðu sambandi.

Belginn segist hins vegar vera hæstánægður í Kína og ekki á leið til Tottenham.

„Jose er sérstakur í mínum augum. Við sendum hvor öðrum skilaboð og hringjum í hvorn annan af og til," sagði Fellaini.

„Hann hefur tekið við Spurs og hann er að standa sig vel. Ég óska honum alls hins besta en ég er góður hér núna."
Athugasemdir
banner
banner
banner