Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 13. desember 2019 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Holland: PSV sigraði Ajax í bikarnum
Anna Björk er á mála hjá PSV.
Anna Björk er á mála hjá PSV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ajax 0 - 2 PSV

Ajax tók á móti PSV í annarri umferð hollensku efstu-deildar bikarkeppninnar í kvennaflokki.

Anna Björk Kristjánsdóttir er á mála hjá PSV og byrjaði hún á varamannabekknum í kvöld.

Katja Snoeijs kom gestunum yfir á 19. mínútu í leiknum og staðan var 0-1 í hálfleik. Á 65. mínútu skoraði Kayleigh van Dooren annað mark gestanna og staðan vænleg fyrir þá.

Fleiri urðu mörkin ekki og PSV því komið áfram í keppninni. Einungis átta lið leika í efstu deild og því er PSV komið í úrslitaleik keppninnar.


Athugasemdir
banner
banner