Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 13. desember 2019 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Inter, Juve, Man Utd og Arsenal öll á eftir sænskum miðjumanni
Mynd: Getty Images
Inter Milan, Arsenal og Manchester United eru öll sögð á eftir sænska miðjumanninum Dejan Kulusevski.

Kulusevski er á mála hjá Atalanta en leikur á láni hjá Parma. Hann er einungis nítján ára gamall en hann hefur heillað áhorfendur ítölsku Seria A á leiktíðinni. Hann hefur spilað þrettán leiki fyrir Parma á leiktíðinni og skorað þrjú mörk.

The Mirror segir ítölsku félögin Inter og Juventus fylgjast náið með miðjumanninum sem talinn er kosta ríflega 40 milljónir punda.

Samkvæmt heimildum Corriere della Sera hefur Inter náð samkomulagi við Atalanta um kaup á miðjumanninum en Atalanta yrði þá að sannfæra Parma um að stytta lánssamninginn. Inter er sagt þurfa að borga 35 milljónir evra fyrir Kulusevski.
Athugasemdir
banner
banner
banner