Fotbolti.net
13.12.20 - 16:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Viðtal

Elías Már: Tilgangur leiksins er ekki að skora 1-3 mörk en samt tapa

Ég er framherji og leitast eftir því að hjálpa liðinu og reyna skora eins mikið og ég get.

Ég er framherji og leitast eftir því að hjálpa liðinu og reyna skora eins mikið og ég get.

Canon

Mynd: Getty Images

Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson hefur blómstrað í vetur með hollenska liðinu Excelsior. Liðið leikur í B-deild Hollands og er Elías markahæsti leikmaður deildarinnar en liðinu gengur ekki nægilega vel. Liðið er í 12. sæti með 20 stig eftir sextán umferðir, Elías hefur skorað sautján mörk.

Fótbolti.net ræddi við Elías í gær og fór yfir hluti eins og leikstöðu, markaskorunina, landsliðið og slæmt gengi liðsins. Elías kemur inn á það að í kjölfar mikillar markaskorunnar hafi andstæðingar Excelsior lagt mikið upp úr því að Elías fái ekki boltann.

Í seinni hluta viðtalsins, sem birtur verður seinna í dag, er Elías spurður út í möguleg félagaskipti.

Hann var til viðtals undir lok október þar sem hann var aðeins spurður út í komandi landsleikjahlé. Byrjað var á því að spyrja Elías út í það en hann hefur ekki verið valinn síðan í mars árið 2017.
Var haft samband við þig, eða veistu að það sé verið að fylgjast með þér varðandi landsliðið? - Þá er ég kannski meira að horfa í verkefnið núna í nóvember frekar en eitthvað annað.

„Nei, ekki neitt. Ég hef ekki heyrt neitt, ég er bara einbeittur á verkefnið hér, að spila vel, skora og eiga einhverja möguleika á því að vera valinn í framtíðinni," sagði Elías.

Voru vonbrigði að fá ekki símtalið í nóvember?

„Nei, ég svo sem pældi ekkert í því og var ekki að búast neitt frekar við því í raun. Það tekur því ekkert að vera svekkja sig á svona hlutum. Það er nægur tími til stefnu á mínum ferli og núna er ég að einbeita mér að því að spila vel og búa til minn feril sem knattspyrnumaður."

Að markaskoruninni, mörkunum hefur rignt inn í vetur. Líður þér eins og þú sért að fara skora í hvert sinn sem þú ferð inn á völlinn?

„Mér leið þannig á tímabili en svo hefur aðeins dregið úr mörkunum í kjölfarið á því að hin liðin eru farin að einbeita sér að því að vera með mann til að dekka mig lungann úr leikjum. Það er reynt að loka mjög mikið á mig en á móti opnast svæði fyrir samherjana. Ég er framherji og leitast eftir því að hjálpa liðinu og reyna skora eins mikið og ég get."

Þú kemur inn á að þú ert framherji, sem er ekkert leyndamál, það kemur þér því kannski ekkert á óvart að þú farir inn í leiki og skorir í þeim mörgum?

„Frá því að ég var yngri þá skoraði ég mjög mikið, en þegar maður fór upp í meistaraflokk, og svo í kjölfarið til Vålerenga og Gautaborgar, þá var ég oft líka látinn spila á kantinum. Ég var því ekki alltaf frammi, ég var mikið að flakka á milli í stöðum og náði ekki fluginu sem fylgir því að vera einungis í minni sterkustu stöðu."

„Núna hef ég byrjað alla leiki sem framherji en undir lok leiks þá hef ég verið settur fyrir aftan framherjann - í 'tíuna'. Það er því enn smá flakk á stöðum en það er svo sem í lagi fyrir mig, ég get leyst margar stöður á vellinum og fyrir slíka leikmenn er alltaf einhver möguleiki að komast inn í liðið. Maður fær ekki alltaf að byrja í sinni stöðu en þetta býður upp á að geta leyst af ef einhver meiðist eða slíkt þá er maður alltaf til taks ef þarf að leysa þá stöðu."


Hefuru einhverja tilfinningu hvort að mörkin séu að koma oftar eða sjaldnar þegar þú ert færður í tíuna undir lok leikja?

„Það fer eiginlega eftir því hvernig leikurinn er að spila, hvort við erum að halda boltanum eða yfir í leiknum og ætlum að nýta okkur skyndisóknir. Ef við erum yfir með einu eða tveimur mörkum þá reynir hitt liðið að sækja og þá er meiri varnarvinna - upp úr því geta komið skyndisóknir."

„Í fyrsta leik tímabilsins skoraði ég ekki fyrr en búið var að færa mig í tíuna og þá skoraði ég tvö. Sama gerðist gegn Den Boch, í stöðunni 0-0 og við manni fleiri var ég settur í tíuna og ég skoraði undir loin. Ég hef því skorað bæði sem fremsti maður og fyrir aftan fremsta mann. Í tíunni er maður aðeins meira í boltanum í þeirri stöðunni þó ég vilji helst vera inn í boxinu og klára þar færin."


Þú ert markahæstur en það kemur fyrir að þó skorar í tapleikjum. Liðinu gengur vel sem er væntanlega engin kjörstaða. Hvernig er líðanin með gengi liðsins?

„Nei, þessi staða finnst mér ekkert sérstaklega spennandi. Við höfum misst góða leikmenn, byrjunarliðsmenn, í meiðsli til lengri tíma. Svo er rúmlega helmingur liðsins búiinn að greinast með Covid. Það er enginn með veiruna núna en á tímapunkti voru tólf leikmenn sem voru frá í einu. Það hefur verið mikið mótlæti á tímabilinu."

„Svo má segja, að mér finnst, mikið andleysi hafa einkennt liðið. Það hefur verið mikill pirringur í liðinu, það hefur ekkert verið að hjálpa. Það eru allir góðir vinir í hópnum en þegar kemur inn í leiki eru menn að pirra sig og gera alls konar mistök sem eiga ekki að sjást. Það er allt í lagi að gera mistök en við erum að gera mistök í hverjum einasta leik. Í fljótu bragði erum við búnir að gera 5-10, jafnvel fleiri, mistök sem leiða að mörkum hjá andstæðingnum. Í kjölfar þeirra fer hausinn oft niður í bringu og nánast gefist upp. Það gerist fulloft."


Er það súrsæt tilfinning eða horfiru á það sem einhvern persónulegan sigur að hafa þó náð marki þegar liðið tapar?

„Mér finnst alltaf geggjað að skora og alltaf góð tilfinning en tilgangur leiksins er ekki að skora 1, 2 eða 3 mörk en samt tapa leiknum. Þetta er liðsíþrótt og maður er alltaf svekktur að tapa leikjum. Það er samt ákveðinn bónus fyrir framherja að ná inn marki en það er ekkert sem maður er að hrópa húrra fyrir. Það er mun mikilvægara að ná inn þremur stigum," sagði Elías að lokum.
Mér finnst alltaf geggjað að skora og alltaf góð tilfinning en tilgangur leiksins er ekki að skora 1, 2 eða þrjú mörk en samt tapa leiknum.

Mér finnst alltaf geggjað að skora og alltaf góð tilfinning en tilgangur leiksins er ekki að skora 1, 2 eða þrjú mörk en samt tapa leiknum.

Canon

Mynd: Getty Images

Svo má segja, að mér finnst, mikið andleysi hafa einkennt liðið. Það hefur verið mikill pirringur í liðinu, það hefur ekkert verið að hjálpa

Svo má segja, að mér finnst, mikið andleysi hafa einkennt liðið. Það hefur verið mikill pirringur í liðinu, það hefur ekkert verið að hjálpa

Canon

Mynd: Getty Images

Ég hef ekki heyrt neitt, ég er bara einbeittur á verkefnið hér, að spila vel, skora og eiga einhverja möguleika á því að vera valinn í framtíðinni

Ég hef ekki heyrt neitt, ég er bara einbeittur á verkefnið hér, að spila vel, skora og eiga einhverja möguleika á því að vera valinn í framtíðinni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er nægur tími til stefnu á mínum ferli og núna er ég að einbeita mér að því að spila vel og búa til minn feril sem knattspyrnumaður.

Það er nægur tími til stefnu á mínum ferli og núna er ég að einbeita mér að því að spila vel og búa til minn feril sem knattspyrnumaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.