Fotbolti.net
13.12.21 - 22:00
Victor Pálsson

„Allir andlega búnir og við erum að fara í jólatörn"

Rudiger fiskaði tvö víti fyrir Chelsea.

Rudiger fiskaði tvö víti fyrir Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Það var nóg um að vera þegar kom að vítaspyrnum í ensku úrvalsdeildinni um helgina en öll toppliðin þurftu að treysta á mörk af punktinum.
Chelsea skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum í 3-2 sigri á Leeds, Manchester United skoraði sitt mark úr víti í 1-0 sigri á Aston Villa, Mo Salah gerði eina mark Liverpool úr víti í 1-0 sigri á Aston Villa og það sama má segja um Manchester City sem vann Wolves 1-0 með vítaspyrnumarki Raheem Sterling.

Það var vel farið yfir hlutina í þættinum Enski boltinn hér á Fótbolta.net þar sem Sæbjörn Steinke ræddi við þá Eið Ben Eiríksson, þjálfara Þróttar Vogum og Gunnar Gunnarsson, leikmanns Fram.

Eiður veltir því fyrir sér hvort margir leikmenn séu hreinlega þreyttir þessa dagana sem er mikið áhyggjuefni fyrir mikið leikjaálag á næstu vikum.

Eiður segir leikmenn líta út fyrir að vera andlega búnir og eru varnarmenn þess vegna að gera virkilega klaufaleg mistök innan teigs.

„Við sjáum bara mörg klaufaleg víti í þessum leikjum og maður veltir því fyrir sér hvort menn væru bara þreyttir, mér fannst einhvern veginn allir bara andlega búnir og við erum að fara inn í einhverja jólatörn," sagði Eiður.

„Flestar þessar vítaspyrnur eru rosalega klaufalegar, klaufalegur varnarleikur leikmanna þar sem er auðvelt að draga þá í vitleysuna."

Nánar er rætt þetta mál í þættinum hér fyrir neðan.

Enski boltinn - Víti eða ekki víti?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.