Fotbolti.net
13.12.21 - 13:44
Elvar Geir Magnússon
- Í beinni

Í BEINNI: 14:00 Nýr dráttur í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar

<b>Í BEINNI:</b> 14:00 Nýr dráttur í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar
Canon

Mynd: Getty Images

Þar sem drátturinn í morgun var dæmdur ógildur þá verður dregið aftur í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar klukkan 14:00

Að sjálfsögðu verður fylgst grannt með drættinum í beinni hér á Fótbolta.net.

Hvaða lið eru í pottunum?
Efri flokkur: Ajax (Holland, C-riðill), Bayern München (Þýskaland, E-riðill), Liverpool (England, B-riðill), Manchester City (England, A-riðill), Manchester United (England, F-riðill), Real Madrid (Spánn, D-riðill), Lille (Frakkland, G-riðill), Juventus (Ítalía, H-riðill)

Neðri flokkur: Atletico Madrid (Spánn, B-riðill), Inter (Ítalía, D-riðill), PSG (Frakkland, A-riðill), Sporting Lissabon (Portúgal, C-riðill), Benfica (Portúgal, E-riðill), Villarreal (Spánn, F-riðill), Red Bull Salzburg (Austurríki, G-riðill), Chelsea (England, H-riðill)

Í beinni

14:18
Takk í dag! (Vona ég!)

Mér sýndist engin mistök vera gerð í seinni drættinum. Ef það þarf að draga í þriðja sinn þá verðum við bara í startholunum!
14:17
14:16
Það er allt á suðupunkti á skrifstofum Real Madrid núna (geri ég fastlega ráð fyrir)! Drógust gegn Benfica í morgun en enda með því að mæta PSG!
14:14
Drættinum er lokið! Spennandi viðureignir framundan
14:14
PSG - Real Madrid
14:14
Inter - Liverpool
14:13
Villarreal - Juventus
14:11
Atletico Madrid - Manchester United
14:10
Chelsea - Lille
14:10
Benfica - Ajax
14:09
Sporting Lissabon - Manchester City
14:08
RB Salzburg - Bayern München
14:06
Nú er ekkert verið að teygja lopann, farið beint í að draga. Salzburg fyrst upp úr pottinum.
14:06
Athöfnin er hafin - Marchetti mættur og byrjar á því að biðjast afsökunar fyrir hönd UEFA á þeim mistökum sem gerð voru í morgun.
14:04
Athöfnin ekki hafin enn... smá tafir hjá UEFA. Væntanlega að vanda sig rosalega mikið í því að vera með allt rétt núna.
13:58
13:53
13:49
Það er víða pirringur út í UEFA vegna þessara vandræðalegu mistaka í morgun. Endurtekni drátturinn tók til dæmis af okkur hádegismatinn hér á skrifstofu Fótbolta.net! Fundað á Krókhálsinum á eftir hvort krafist verði afsökunarbeiðni frá UEFA.

Jæja, annar kaffibolli í staðinn bara...
13:42
Horfðu á dráttinn í beinni á heimasíðu UEFA með því að smella hérna

13:33


Pep Guardiola, stjóri Manchester City, um að drátturinn sé endurtekinn:
"Mér finnst eðlilegt að dregið sé aftur. Það voru gerð mistök. Menn gera mistök, leikmenn og þjálfarar þekkja það. Stundum gerir UEFA mistök líka. Víð bíðum eftir nýjum drætti og ég er sáttur við það. Ég tel eðlilegt að dregið sé aftur svo engar efasemdir séu. Allir mótherjarnir eru erfiðir, sumir erfiðari en aðrir en þeir eru allir erfiðir."
13:26
Útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar:
Það er búið að draga í útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar þar sem sextán lið keppa um að fylgja þeim átta liðum sem unnu riðlana í 16-liða úrslitin.

Marseille - Qarabag
PSV Eindhoven - Maccabi Tel-Aviv
Fenerbahce - Slavia Prag
Midtjylland - PAOK Salonika
Leicester City - Randers
Celtic - Bodö/Glimt
Sparta Prag - Partizan Belgrade
Rapid Vín - Vitesse EÐA Tottenham
13:20
13:19
Svo bregðast krosstré sem önnur... minn maður Marchetti klúðraði málunum rækilega í morgun. Maðurinn sem talinn er bestur í Evrópu að draga! Spurning hvort einhver annar mæti á eftir?

13:18
13:17
Forráðamenn Real Madrid fagna ekki

Madrídingar voru hæstánægðir með að fá Benfica í morgun. Þeir vildu að það einvígi yrði látið standa en verður ekki að ósk sinni.

Drátturinn verður endurtekinn frá grunni
13:13
Eigum við ekki að rifja upp liðin sem eru í pottunum? Lið sem voru saman í riðli og lið sem eru frá sama landi geta ekki dregist saman (eiga ekki að geta það allavega!)

Efri flokkur: Ajax (Holland, C-riðill), Bayern München (Þýskaland, E-riðill), Liverpool (England, B-riðill), Manchester City (England, A-riðill), Manchester United (England, F-riðill), Real Madrid (Spánn, D-riðill), Lille (Frakkland, G-riðill), Juventus (Ítalía, H-riðill)

Neðri flokkur: Atletico Madrid (Spánn, B-riðill), Inter (Ítalía, D-riðill), PSG (Frakkland, A-riðill), Sporting Lissabon (Portúgal, C-riðill), Benfica (Portúgal, E-riðill), Villarreal (Spánn, F-riðill), Red Bull Salzburg (Austurríki, G-riðill), Chelsea (England, H-riðill)
13:07


VELKOMIN AFTUR! (Þetta er meiri vitleysan)

UEFA hefur staðfest að Meistaradeildardrátturinn frá því í morgun hefur verið dæmdur ógildur. Það þarf að draga aftur í 16-liða úrslitin og nýr dráttur hefur verið settur á klukkan 14:00.

Mistök voru gerð með kúlu Manchester United fyrr í dag og kúlan var ekki í pottinum þegar mótherjar Atletico Madrid voru dregnir.

Hér má sjá hvernig ógildi drátturinn var.

Þetta mál þykir allt hið vandræðalegasta fyrir UEFA en ef fyrri dráttur hefði staðið hefði Manchester United dregist gegn franska stórliðinu PSG.
12:23
Segjum þessari beinu textalýsingu lokið

Við á Fótbolta.net munum halda áfram að fylgjast með framvindu mála varðandi Meistaradeildardráttinn og hvort það þurfi að endurtaka hann.

Þann 25. febrúar verður dregið í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Hvaða lið eru þegar komin áfram í 16 liða úrslitin og sleppa við útsláttarkeppnina?
Lyon (Frakkland), Bayer Leverkusen (Þýskaland), Mónakó (Frakkland), West Ham (England), Spartak Moskva (Rússland), Eintracht Frankfurt (Þýskaland), Rauða Stjarnan (Serbía), Galatasaray (Tyrkland).
12:21
PORTO - LAZIO
12:20
SHERIFF - BRAGA
12:19
BORUSSIA DORTMUND - RANGERS
12:18
ZENIT - REAL BETIS
12:17
BARCELONA - NAPOLI

Gómsætur Evrópudeildarslagur!
12:16
RB LEIPZIG - REAL SOCIEDAD
12:15
ATALANTA - OLYMPIAKOS
12:14
SEVILLA - DINAMO ZAGREB
12:14
Jæja Evrópudeildin... það er byrjað að draga
12:12
BRJÓTANDI TÍÐINDI: UEFA hefur staðfest við Mirror að verið er að skoða Meistaradeildardráttinn og rætt um hvort það þurfi að draga upp á nýtt.
12:08
Sky Sports hefur sent UEFA fyrirspurn og beðið um útskýringu á því hvað fór úrskeiðis í Meistaradeildardrættinum áðan.
12:07
Það er búið að skipta um bakgrunn í salnum í Sviss og þá er hægt að draga í Evrópudeildina. Vonandi mun það ganga betur en drátturinn í Meistaradeildina!
12:04
12:00
Það rýrir trúverðugleika keppninnar að láta dráttinn standa.

11:58
11:49
11:46
Mistökin í Meistaradeildardrættinum...

Eitthvað fór algjörlega úrskeiðis hjá UEFA og talað um að Manchester United hafi ekki verið í pottinum þegar dregið var gegn Atletico Madrid.

Mögulega dregið aftur? Eða hvað?
11:43
Dortmund og Barcelona eru í sitthvorum flokknum svo þau geta ekki mæst innbyrðis. En ekki amalegt að vera með þessi lið í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar!




11:41


Klukkan 12 er dregið í nýja útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar. Sextán lið berjast um að bætast í hóp þeirra átta liða sem eru þegar búin að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Hvernig virkar útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar?
Dregið er í átta viðureignir, leikið heima og að heiman. Sigurliðin átta munu komast í 16-liða úrslitin en tapliðin eru úr leik.

Hvaða lið eru í útsláttarkeppninni?
Þau lið sem enduðu í öðru sæti í sínum riðli í Evrópudeildinni og þau lið sem enduðu í þriðja sæti í riðlum Meistaradeildarinnar.

Hvenær verður útsláttarkeppnin?
Fyrri leikir 17. febrúar og seinni leikir viku síðar.

Útsláttarkeppnin - Liðin í pottunum í dag:

Efri flokkur:
Real Betis (Spánn)
Braga (Portúgal)
Dinamo Zagreb (Króatía)
Lazio (Ítalía)
Napoli (Ítalía)
Olympiacos (Grikkland)
Rangers (Skotland)
Real Sociedad (Spánn)

Neðri flokkur:
Atalanta (Ítalía)
Barcelona (Spánn)
Dortmund (Þýskaland)
Leipzig (Þýskaland)
Porto (Portúgal)
Sevilla (Spánn)
Sheriff (Moldóva)
Zenit Pétursborg (Rússland)

*Lið frá sama landi geta ekki dregist saman.

Hvaða lið eru þegar komin áfram í 16 liða úrslitin og sleppa við útsláttarkeppnina?
Lyon (Frakkland), Bayer Leverkusen (Þýskaland), Mónakó (Frakkland), West Ham (England), Spartak Moskva (Rússland), Eintracht Frankfurt (Þýskaland), Rauða Stjarnan (Serbía), Galatasaray (Tyrkland).
11:30
Áhugaverðasti slagurinn hjá okkar lesendum er klárlega PSG gegn United. Messi gegn Ronaldo. Pochettino (næsti stjóri United?) gegn Rangnick. Skrifað í ský.

Næst ætlum við að fara að skoða dráttinn í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar. Sá dráttur er klukkan 12.
11:26
Var í fyrsta sinn að klúðrast dráttur hjá Marchetti???

11:22
11:21
PSG GEGN MANCHESTER UNITED!

Messi gegn Ronaldo!
11:20
CHELSEA - LILLE
11:19
SPORTING LISSABON - JUVENTUS
11:18
INTER - AJAX
11:17
SALZBURG - LIVERPOOL

Góður dráttur fyrir Klopp og lærisveina.

11:16
ATLETICO MADRID - BAYERN MÜNCHEN

Safaríkt!
11:16
Það voru mistök í drættinum! Villarreal dróst gegn Manchester United og það þurfti að draga aftur þar sem liðin voru saman í riðli!

Það verður Villarreal - Manchester City!
11:14
VILLARREAL - MANCHESTER CITY

11:13
BENFICA - REAL MADRID
11:13
DRÁTTURINN ER HAFINN

Það er byrjað að hræra í pottunum og Benfica frá Portúgal kemur upp.
11:12
Verið að fara yfir fyrirkomulagið. Ég treysti á að lesendur hafi þegar verið búnir að kynna sér það í þaula. Reyndar nægir bara að vita að verið sé að fara að draga í 16-liða úrslitin og það eru rosalega mörg góð lið í pottunum. Annað er aukaatriði.
11:10
Arsenal á fulltrúa í Meistaradeildinni... eða drættinum allavega!


Fyrrum leikmaður Zenit í Pétursborg og Arsenal.
11:09
Úrslitaleikurinn fer fram í Rússlandi og Arshavin ætlar að aðstoða við dráttinn í tilefni þess. Skemmtilegur leynigestur!

11:07
Óvæntur Haller


Marchetti með ræðu þar sem hann kemur meðal annars inn á markahæstu leikmenn keppninnar hingað til.

Meistaradeildin:
10 - Sebastian Haller (Ajax)
9 - Robert Lewandowski (Bayern)
7 - Christopher Nkunku (RB Leipzig)
7 - Mohamed Salah (Liverpool)
6 - Cristiano Ronaldo (Man Utd)
11:05
Marchetti er mættur. Kóngurinn! Lítur út fyrir að þetta ætli að verða snarpt og nokkuð gott í dag. Engin dansatriði og ekkert vesen.
11:03
Dramatískt tilþrifamyndband frá keppninni hingað til er í gangi. Það er ekkert verið að finna upp hjólið hérna. Hefðbundin dagskrá.
11:01
Meistaradeildarlagið farið að óma (Besta stef heims (ásamt Þjóðadeildarlaginu)), svo athöfnin er hafin! Vonandi verður lopinn ekki teygður of mikið hjá UEFA í dag.
10:49


Ég veit ekki með ykkur en ég er kjánalega spenntur fyrir því að sjá og heyra Giorgio Marchetti útskýra dráttinn áður en byrjað verður að hræra í pottunum. Þegar kemur að því að draga í boltanum er alltaf hringt í Marchetti enda bestur í Evrópu í þeim fræðum.
10:41
Áður en fjörið hefst í Sviss... er goðsögn að fara að kveðja á miðvikudaginn?

10:40
Jæja nú jæja! Fólk er að setja sig í startholurnar og spennan eykst í Sviss. Ef þið viljið blanda ykkur í umræðuna fyrir þennan drátt þá er kassamerkið #fotboltinet tilvalið á Twitter!

Gleymum ekki einu: Það er möguleiki á Ronaldo gegn Messi í 16-liða úrslitum!

09:57
Drátturinn verður sýndur beint á vefsíðu UEFA. Klukkutími rúmur í athöfnina þegar þetta er skrifað, við hefjum textalýsingu að nýju þegar nær dregur.
09:55
Aðrar hagnýtar upplýsingar:

Hvenær verða 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar:
Fyrri leikir: 15./16. febrúar og 22./23. febrúar.
Seinni leikir: 8./9. mars og 15./16. mars.

Aðrar lykildagsetningar í Meistaradeildinni:
Dregið í 8-liða úrslit og undanúrslit: 18. mars.
Fyrri leikir í 8-liða úrslitum: 5.-6. apríl.
Seinni leikir í 8-liða úrslitum: 12.-13. apríl.
Fyrri leikir í undanúrslitum: 26.-27. apríl.
Seinni leikir í undanúrslitum: 3.-4. maí.
Úrslitaleikurinn: 28. maí á Gazprom Arena í Pétursborg.



Hvaða breytingar eru þetta tímabil:
Útivallarmarkareglan er ekki við gildi sem þýðir að ef einvígi eru jöfn eftir 180 mínútna fótbolta þá verður farið í framlengingu, sama hversu mörg heimaleikjamörk hafa verið skoruð. Vítaspyrnukeppni er notuð til að fá fram úrslit ef staðan er enn jöfn eftir framlengingu.
09:53
Hverjum geta ensku liðin mætt:



LIVERPOOL
Mögulegir andstæðingar: PSG, Sporting, Inter, Benfica, Villarreal, RB Salzburg.
Besti drátturinn: RB Salzburg.
Versti drátturinn: PSG.



MANCHESTER CITY:
Mögulegir andstæðingar: Atletico Madrid, Sporting, Inter, Benfica, Villarreal, RB Salzburg.
Besti drátturinn: RB Salzburg.
Versti drátturinn: Inter.



CHELSEA:
Mögulegir andstæðingar: Ajax, Bayern München, Real Madrid, Lille.
Besti drátturinn: Lille.
Versti drátturinn: Bayern München.



MANCHESTER UNITED:
Mögulegir andstæðingar: Atletico Madrid, Inter, PSG, Sporting Lissabon, Benfica, RB Salzburg.
Besti drátturinn: Sporting Lissabon.
Versti drátturinn: PSG.
09:51
Hvaða lið eru í pottunum?



Efri flokkur:
Ajax (Holland, C-riðill)
Bayern München (Þýskaland, E-riðill)
Liverpool (England, B-riðill)
Manchester City (England, A-riðill)
Manchester United (England, F-riðill)
Real Madrid (Spánn, D-riðill)
Lille (Frakkland, G-riðill)
Juventus (Ítalía, H-riðill)



Neðri flokkur:
Atletico Madrid (Spánn, B-riðill)
Inter (Ítalía, D-riðill)
PSG (Frakkland, A-riðill)
Sporting Lissabon (Portúgal, C-riðill)
Benfica (Portúgal, E-riðill)
Villarreal (Spánn, F-riðill)
Red Bull Salzburg (Austurríki, G-riðill)
Chelsea (England, H-riðill)



Hvernig virkar drátturinn?
Liðin sem unnu riðlana eru í efri flokki og dragast gegn liðunum í neðri flokki, liðunum sem höfnuðu í öðru sæti í riðlunum. Liðin í neðri flokknum leika fyrri leikinn á heimavelli. Lið sem eru frá sama landi geta ekki dregist saman og ekki heldur lið sem voru saman í riðli.
09:48
Góðan og gleðilegan daginn!

Nú er um að gera að hella í bolla og búa sig undir annasaman dag í höfuðstöðvum UEFA. Dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar klukkan 11:00.

Svo klukkan 12:00 er dregið í nýja útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar sem nánar er útskýrð hérna.

Einnig verður dregið í Sambandsdeildina klukkan 13 en við látum það vera að fylgjast með þeim drætti beint. Niðurstöðurna koma hinsvegar beint inn á síðuna!

Það verður því mikið stuð hér í þessari beinu textalýsingu alveg fram yfir hádegið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.