Fotbolti.net
13.12.21 - 12:44
Elvar Geir Magnússon

Dregið aftur í Meistaradeildina klukkan 14 (Staðfest)

Giorgio Marchetti á um dráttinn fyrir UEFA.

Giorgio Marchetti á um dráttinn fyrir UEFA.

Canon

Mynd: EPA

UEFA hefur staðfest að Meistaradeildardrátturinn frá því í morgun hefur verið dæmdur ógildur. Það þarf að draga aftur í 16-liða úrslitin og nýr dráttur hefur verið settur á klukkan 14:00.

Mistök voru gerð með kúlu Manchester United fyrr í dag og kúlan var ekki í pottinum þegar mótherjar Atletico Madrid voru dregnir.

Hér má sjá hvernig ógildi drátturinn var.

Þetta mál þykir allt hið vandræðalegasta fyrir UEFA en ef fyrri dráttur hefði staðið hefði Manchester United dregist gegn franska stórliðinu PSG.

Fylgst verður með drættinum í beinni lýsingu hér á Fótbolta.net en dregið verður aftur frá grunni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.