13.12.21 - 17:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Milos látinn fara frá Hammarby (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Milos Milojevic, sem var samningsbundinn sænska félaginu Hammarby út tímabilið 2024, hefur verið látinn fara.
Milos fór í viðræður við Rosenborg á dögunum en var ekki ráðinn þjálfari norska stórliðsins.
Milos fór í viðræður við Rosenborg á dögunum en var ekki ráðinn þjálfari norska stórliðsins.
Stjórn Hammarby ákvað að Milos myndi láta af störfum og er það vegna atburða síðustu vikna. Stjórnin er á því að Milos hafi ekki hegðað sér ásættanlega með því að fara til Þrándheims til að ræða við Rosenborg. Milos sagði við stjórnina að hann ætlaði að skrifa undir hjá Rosenborg og því fara frá Hammarby.
Milos tók við liði Hammarby í júní á þessu ári og liðið lauk keppni í fimmta sæti sænsku Allsvenskan.
Milos er fyrrum þjálfari Víkings og Breiðabliks. Hann hefur þá þjálfað hjá Mjällby og verið aðstoðarþjálfari hjá Red Star.