13.12.21 - 10:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þróttur fær Danielle frá HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Þróttur tilkynnti í gær að Danielle Marcano væri gengin í raðir félagsins og myndi spila með liðinu næsta sumar.
Danielle, sem fædd er árið 1997, er bandarískur sóknarmaður sem lék síðastliðið sumar með HK í Lengjudeild kvenna. Þar skoraði hún 6 mörk í 12 leikjum.

Áður hefur Danielle m.a. leikið með hinu þekkta kvennaliði Tennessee háskólans þar sem hún lék með bæði Katie Cousins og Mary Alice Vignola sem báðar hafa leikið með Þrótti.
Danielle á að baki farsælan feril í bandarísku háskólakeppninni, hún lék 76 leiki með Tennessee liðinu og skoraði í þeim 16 mörk.
Kristján Kristjánsson, formaður knd. Þróttar segir;
„Við Þróttarar fögnum komu Danielle í hópinn okkar, hún mun styrkja hann verulega og auka samkeppni innan hans."
„Danielle er sóknarmaður sem við teljum að falli vel að leikstíl kvennaliðs Þróttar og hún sýndi það glöggt í leikjum HK á síðasta sumri að þarna er á ferð hörku leikmaður sem verður gaman að sjá í Þróttarabúningnum næsta sumar.“