14.01.13 - 22:04
Magnús Már Einarsson
Andy Pew og Ingi Rafn í Selfoss (Staðfest) - Níu ungir sömdu

Andy Pew í leik með Selfyssingum árið 2007. Hann er nú kominn aftur í Selfoss treyjuna.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Enski varnarmaðurinn Andy Pew hefur gengið að nýju til liðs við Selfoss en hann skrifaði undir eins ára samning við félagið. Andy lék með Selfyssingum í 2. deildinni 2006 og 2007 og hjálpaði liðinu að komast upp í 1. deild á síðara ári sínu með félaginu.
Andy fór síðan aftur til Englands áður en hann gekk í raðir Árborg árið 2011. Í fyrrasumar lék hann síðan með Hamar í 2. deildinni.

Andy hóf ferill sinn hjá Everton en hann hefur einnig leikið með Tranmere Rovers, Chester City og Colwyn Bay.
,,Ég hef beðið lengi eftir því að komast aftur í Selfosstreyjuna og er mjög stoltur af því að hafa samið við félagið. Mér líst vel á hópinn og það eiga fleiri leikmenn eftir að bætast við svo að mér lýst vel á komandi keppnistímabil. Verkefni sumarsins er að koma liðinu aftur á þann stað sem það á að vera - í Pepsi-deildinni,\" sagði Andy í samtali við sunnlenska.is eftir að hann skrifaði undir í dag.
Þá endurnýjaði Ingi Rafn Ingibergsson samning sinn við Selfoss um eitt ár en hann var lánaður til Ægis í fyrrasumar og var einn af markahæstu leikmönnum 3. deildarinnar. Ingi lék áður með Selfyssingum, til ársins 2005 þegar hann skipti yfir í ÍBV og lék með Eyjamönnum í fjögur tímabil.
Auk þess skrifuðu níu ungir leikmenn undir þriggja ára samning við Selfyssinga í dag en flestir þeirra eru ennþá í 2. flokki.
Það voru þeir Sindri Pálmason, Vigfús Blær Ingason, Gunnar Hallgrímsson, Svavar Berg Jóhannsson, Ingvi Rafn Óskarsson, Markús Árni Vernharðsson, Sindri Rúnarsson, Þorsteinn Daníel Þorsteinsson og Magnús Ingi Sveinsson.

Heimild: Sunnlenska.is

Ingi Rafn Ingibergsson.

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl