14.01.13 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Kader Mangane til Sunderland (Staðfest)


Mynd: Heimasíða Sunderland


Mynd: Heimasíða Sunderland
Sunderland hefur fengið varnarmanninn Kader Mangane á láni frá Al Hilal út þetta tímabil.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur einnig leikið í Frakklandi, Sviss og í heimalandi sínu Senegal á ferlinum.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur einnig leikið í Frakklandi, Sviss og í heimalandi sínu Senegal á ferlinum.
,,Kader er leikmaður sem mun bæta hópinn okkar og gefa okkur möguleika. Hann mun auka samkeppni um stöður og við erum ánægðir með að fá hann til félagsins,\" sagði Martin O\'Neill stjóri Sunderland.
Mangane er annar leikmaðurinn sem Sunderland fær í þessum mánuði en áður hafði Alfred N\'Diaye komið til félagsins.
Mangane er annar leikmaðurinn sem Sunderland fær í þessum mánuði en áður hafði Alfred N\'Diaye komið til félagsins.
Heimild: Heimasíða Sunderland
