Fotbolti.net
14.01.14 - 15:19
Magnús Már Einarsson

John Guidetti til Stoke á láni (Staðfest)

John Guidetti til Stoke á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stoke hefur fengið framherjann John Guidetti til liðs við sig en hann kemur á láni frá Manchester City.

Guidetti er 21 árs Svíi en hann skoraði 20 mörk í 23 leikjum á láni hjá Feyenoord tímabilið 2011/2012.

Guidetti hefur lítið fengið að spila hjá Manchester City en nokkur félög vildu fá hann á láni. Á endanum náði Stoke að krækja í kappann.
Þá hefur Stoke keypt miðjumanninn Stephen Ireland frá Aston Villa en hann hefur verið í láni hjá félaginu.

Stoke þurfti að ganga frá kaupum á Ireland áður en lánssamningur Guidetti gekk í gegn því ekki má vera með tvo leikmenn á láni frá öðru félagi í úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.