14.01.14 - 16:08
Elvar Geir Magnússon
Seedorf tekur við AC Milan (Staðfest)

Toppmaðurinn Seedorf með bros á vör.

Mynd: Getty Images

Toppmaðurinn Seedorf með bros á vör.

Mynd: Getty Images
Hollendingurinn Clarence Seedorf hefur staðfest að hann hafi fengið þjálfarastarfið hjá AC Milan. Seedorf er 37 ára og hefur sagt upp samningi sínum við Botafogo í Brasilíu.
AC Milan er í neðri hluta ítölsku A-deildarinnar og var Massimiliano Allegri rekinn úr þjálfarastólnum eftir slæmt tap á sunnudag.

Fjölmiðlar segja að Seedorf hafi skrifað undir samning til tveggja og hálfs árs. Hann mun horfa á bikarleik liðsins gegn Spezia á morgun áður en hann tekur til starfa.
„Ég hef lagt skóna á hilluna eftir 22 ára leikmannaferil. Þetta hefur verið erfitt tímabil en ég er ánægður með hvað ég hef afrekað á mínum ferli og hvað ég hef náð að gera hjá Botafogo,\"
Seedorf er goðsögn hjá stuðningsmönnum Milan en hann vann Meistaradeild Evrópu með félaginu 2003 og 2007. Hann vann sömu keppni með Ajax 1995 og Real Madrid 1998. Hann er að taka við sínu fyrstu þjálfarastarfi.