Fotbolti.net
14.01.14 - 11:05
Magnús Már Einarsson

Tindastóll mun taka þátt í 1. deildinni (Staðfest)

Tindastóll mun taka þátt í 1. deildinni (Staðfest)
Canon

Mynd: Óli Arnar

Tindastóll hefur ákveðið að senda lið sitt til keppni í 1. deild karla í sumar.

Slæm fjárhagsstaða, aðstöðuleysi, mannekla og íbúafækkun á svæðinu gerði það að verkum að Tindastóll íhugaði að taka ekki þátt í 1. deildinni á næsta tímabili og senda þess í stað lið til keppni í 4. deild.

Eftir fjölmennan aðalfund hjá Tindastóli í gær hefur sú ákvörðun hins vegar verið tekin að senda lið Tindastóls til keppni í 1.deild.


Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls:
Undanfarnar vikur hefur stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls skoðað allar hliðar þess að halda liðinu áfram í 1.deild eða hefja leik í 4.deild. Reksturinn hefur verið þungur og ljóst að ekki yrði haldið áfram á sömu braut, við óbreyttar aðstæður. Tindastóll hefur síðustu tvö ár leikið í 1.deild og haldið sæti sínu með sóma. Það hefur verið byggt á ungum og afar efnilegum heimamönnum með tilstyrk erlendra leikmanna auk þess sem lánsmenn hafa styrkt hópinn.

Á undanförnum dögum hefur hópur fólks í samfélaginu stigið fram og hvatt okkur til að berjast fyrir sæti liðsins í deildinni og jafnframt boðist til að leggjast á árarnar með okkur. Eins hafa fyrirtæki viljað leggja okkur lið og boðist til að standa enn frekar við bakið á okkur í þessum málum. Þessi eindregni stuðningur er forsenda þeirrar ákvörðunar sem við höfum nú tekið.

Eftir fjölmennan aðalfund í gær þar sem öll stjórn deildarinnar var endurkjörin hefur sú ákvörðun verið tekin að senda lið Tindastóls til keppni í 1.deild. Liðið mun verða skipað okkar heimamönnum eins og kostur er en jafnframt styrkt með öðrum leikmönnum.

Við bjóðum öll lið í 1.deild velkomin á Sauðárkróksvöll í sumar. Áfram Tindastóll !

14.janúar 2014
Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls
Tindastóll mun taka þátt í 1. deildinni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.