14.01.16 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Belginn Jose Riga tekur aftur við Charlton (Staðfest)

Jose Riga.

Mynd: Getty Images

Jose Riga.

Mynd: Getty Images
Belginn Jose Riga er orðinn knattspyrnustjóri Charlton að nýju en hann tók við liðinu tímabundið 2014 eftir að Chris Powell var rekinn.
Karel Fraeye fékk sparkið sem stjóri Charlton í gær en liðið situr í fallsæti í Championship-deildinni og tapaði 5-0 fyrir Huddersfield á þriðjudagskvöld.
Karel Fraeye fékk sparkið sem stjóri Charlton í gær en liðið situr í fallsæti í Championship-deildinni og tapaði 5-0 fyrir Huddersfield á þriðjudagskvöld.
Riga er 58 ára en hann hefur meðal annars stýrt Blackpool, Standard Liege og Metz.
Jóhann Berg Guðmundsson spilar með Charlton en hann er að fá sinn þriðja stjóra þetta tímabilið.
Jóhann Berg Guðmundsson spilar með Charlton en hann er að fá sinn þriðja stjóra þetta tímabilið.
