Fotbolti.net
14.01.16 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ciro Immobile aftur til Torino (Staðfest)

Immobile hefur gert eitt mark í tólf landsleikjum.

Immobile hefur gert eitt mark í tólf landsleikjum.

Canon

Mynd: Getty Images

Ciro Immobile var einn af heitari bitunum á leikmannamarkaðinum fyrir tveimur og hálfu ári síðan eftir að hafa verið markahæstur í ítölsku A-deildinni sem leikmaður Torino.

Borussia Dortmund keypti ítalska sóknarmanninn sem átti erfitt uppdráttar í Þýskalandi og var lánaður til Sevilla í upphafi þessa tímabils.
Immobile hefur aðeins komið við sögu í átta deildarleikjum Sevilla á tímabilinu og heldur nú heim til að reyna að endurvekja ferilinn.

Torino fær Immobile á láni frá Dortmund og kaupákvæði er í samningnum sem hljóðar upp á ellefu milljónir evra.

„Ég er svo ánægður með þetta, ég get ekki beðið eftir að byrja að æfa og spila með strákunum á nýjan leik,\" sagði Immobile við vefsíðu Torino.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.