14.01.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Halldór Arnarsson í ÍR (Staðfest)

Kominn heim

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn heim

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Arnarsson er genginn til liðs við 2.deildarlið ÍR en hann kemur til félagsins frá Selfossi.
Halldór er á 27. aldursári og gerir tveggja ára samning við ÍR sem leikur í 2.deildinni.
Hann er uppalinn hjá Breiðholtsliðinu en yfirgaf ÍR fyrir Fram árið 2013 og lék með Fram í tvö tímabil áður en hann færði sig á Selfoss.
Halldór á 101 leik í deild og bikar og hefur skorað í þeim tvö mörk en hann lék 12 leiki með Selfossi í 1.deildinni síðasta sumar.
Gengið hefur verið frá félagaskiptunum og er Halldór því löglegur með ÍR í kvöld þegar liðið mætir Fylki í Reykjavíkurmótinu.