Fotbolti.net
14.01.16 - 14:32
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Spalletti tekinn við Roma (Staðfest)

Litríkur.

Litríkur.

Canon

Mynd: Getty Images

Luciano Spalletti hefur verið ráðinn þjálfari ítalska félagsins Roma á nýjan leik.
Spalletti þekkir vel til hjá félaginu en hann stýrði Roma við góðan orðstír frá 2005-2009 og vann tvisvar til silfurverðlauna í Serie A ásamt því að gera liðið að bikarmeisturum í tvígang.

Þessi 56 ára gamli Ítali tekur við af Rudi Garcia sem var rekinn í vikunni.

Spalletti fór frá Roma til Zenit St. Pétursborg árið 2009 en hann var í Rússlandi í fimm ár. Frá 2014 hefur hann síðan verið án starfs.

Roma er með 34 stig í 5.sæti Serie A, sjö stigum á eftir toppliði Napoli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.