14.01.16 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Steve Cotterill rekinn (Staðfest)

Steve Cotterill og Tony Pulis í góðum gír er Bristol City gerði 2-2 jafntefli við West Brom í enska bikarnum á dögunum.

Mynd: Getty Images

Bristol City er búið að reka Steve Cotterill úr starfi sem knattspyrnustjóra félagsins eftir slæman fyrri helming tímabilsins.
Bristol vann ensku C-deildina í fyrra undir stjórn Cotterill en gengi félagsins í Championship deildinni hefur verið slakt.

Bristol er þar í fallbaráttu, með 21 stig eftir 26 umferðir, tveimur stigum frá MK Dons og þremur frá Rotherham sem eru í næstu öruggu sætum.
„Ég fékk Steve Cotterill til Bristol City fyrir rúmlega tveimur árum síðar því ég taldi hann rétta manninn til að stýra félaginu í C-deildinni,\" sagði Keith Dawe, eigandi félagsins.
„Steve gerði frábæra hluti við stjórn, félagið vann deildina og Johnstone\'s Paint bikarinn og þetta var tímabil sem mun lifa í minningu allra stuðningsmanna félagsins.
„Því miður hafa hlutirnir ekki gengið upp á þessu tímabili og okkur finnst vera þörf á breytingum.
„Ég vil þakka Steve Cotterill fyrir vel unnin störf, en því miður höfum við staðnað og þurfum að breyta til ef við ætlum að ná því markmiði að verða að úrvalsdeildarfélagi einn daginn.\"