Fotbolti.net
14.01.16 - 06:30
Arnar Geir Halldórsson

Vagner Love til Monaco (Staðfest)

Mættur í franska boltann

Mættur í franska boltann

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Vagner Love er kominn aftur í Evrópuboltann eftir stutt stopp í heimalandinu.
Love hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við franska úrvalsdeildarfélagið Monaco sem vinnur hörðum höndum að því að klófesta Meistaradeildarsæti en liðið situr í 3.sæti Ligue 1.

Love hefur lengst af sínum ferli leikið með CSKA Moskvu en hann hefur skorað 117 mörk í 241 leik fyrir rússneska stórliðið.

Kaupverðið er talið vera undir einni milljón evra sem hlýtur að teljast gjafaverð fyrir þennan 31 árs gamla markaskorara en hann skoraði 14 mörk í 30 leikjum í brasilísku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.