Crewe Alexandra og Bolton Wanderers áttust við í unglingaliðsleik þar sem leikmenn 18 ára og yngri eru gjaldgengir. Það var eitt skrautlegt atvik sem átti sér stað í þessum leik.
Leikurinn fór fram um síðustu helgi en í miðjum leik komu óvæntir gestir. Þá hlupu þrjú dádýr í gegnum völlinn á hörku spretti sem kom mönnum í opna skjöldu. Stöðva þurfti leikinn við þessa uppákomu.
Leikmaður Crewe var að gera sig reiðubúinn að framkvæma aukaspyrnu en þá komu dýrin hlaupandi inn á völlinn eins og ekkert væri eðlilegra.
Þetta skondna atvik má sjá hér að neðan.
🦌 | Oh Deer, oh Deer!#CreweAlex Under-18s had a few unwanted pitch invaders during their game with @OfficialBWFC over the weekend...👀 pic.twitter.com/kZfc8Etnl4
— Crewe Alexandra F.C. (@crewealexfc) January 13, 2020
Athugasemdir