Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er vongóður um að Joel Matip, Fabinho og Dejan Lovren verði fljótlega klárir í slaginn á nýjan leik eftir meiðsli.
Leikmennirnir hafa allir verið á meiðslalistanum undanfarnar vikur en þeir gætu náð að æfa fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudaginn.
Leikmennirnir hafa allir verið á meiðslalistanum undanfarnar vikur en þeir gætu náð að æfa fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudaginn.
„Ég bíð þar til að þeir koma á völlinn og einhver segir mér að þeir megi taka fulla æfingu," sagði Klopp.
„Það lítur út fyrir að Joel verði með, það lítur út fyrir að Fabinho geti æft degi síðar, ég er ekki viss. Dejan gæti kannski æft líka."
„Þetta er þýðingarmikið og hjálpar okkur mikið auðvitað. Við sjáum hvernig þetta lítur út. Þessi vika er mjög mikilvæg."
Athugasemdir