Pepe Reina var í gær staðfestur sem leikmaður Aston Villa. Hann gengur í raðir Villa á lán út þessa leiktíð.
„Með Reina höfum við tryggt okkur leikmann sem hefur mikla úrvalsdeildarreynslu," sagði Dean Smith, stjóri Villa, eftir að félagaskiptin höfðu verið staðfest.
„Með Reina höfum við tryggt okkur leikmann sem hefur mikla úrvalsdeildarreynslu," sagði Dean Smith, stjóri Villa, eftir að félagaskiptin höfðu verið staðfest.
„Í sumar leituðum við að reyndum markverði og fengum inn Tom Heaton. Því miður meiddist hann og verður ekki meira með á leiktíðinni."
„Í Reina fáum við leikmann sem hentar okkar þörfum ekki einungis vegna reynslu því hann hefur einnig mikla leiðtoga hæfileika," sagði Smith um Reina.
Athugasemdir