Fotbolti.net
14.01.21 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Man City gæti keypt 'mini Messi'

Dario Sarmiento.

Dario Sarmiento.

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn sautján ára Dario Sarmiento er orðaður við Manchester City en enska félagið þarf að bíða eftir átján ára afmælisdegi hans áður en hægt verður að gera tilboð.

Sarmiento er kallaður 'mini Messi' en honum er spáð bjartri framtíð í heimalandi sínu, Argentínu, þar sem hann spilar fyrir Estudiantes.

Manchester City hefur verið í viðræðum við Estudiantes um leikmanninn efnilega.

Spennandi verður að sjá hvort þessi örvfætti leikmaður muni mæta til Manchester City en talið er að hann myndi kosta undir 10 milljónum punda.

Þess má geta að forseti Estudiantes er Juan Sebastian Veron, fyrrum leikmaður Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.