Berglind Baldursdóttir er gengin í raðir Fylkis frá Þór/KA. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Fylki.
Berglind var í láni hjá Fylki á síðasta tímabili og hefur alls leikið 77 meistaraflokksleiki með Fylki, Breiðabliki/Augnabliki og Þór/KA.
Berglind var í láni hjá Fylki á síðasta tímabili og hefur alls leikið 77 meistaraflokksleiki með Fylki, Breiðabliki/Augnabliki og Þór/KA.
Auk þess sem Berglind hefur spilað fjóra landsleiki fyrir U17 og U19 og skorað í þeim eitt mark.
„Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að leikmenn haldi tryggð við félagið og ætli sér að koma því í deild þeirra bestu!" segir í tilkynningu Fylkis en félagið féll úr efstu deild síðasta sumar.
Athugasemdir