Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 14. janúar 2022 13:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarki Steinn til Catanzaro (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Steinn Bjarkason er genginn í raðir Catanzaro í ítölsku C-deildinni.

Bjarki kemur á láni út tímabilið og snýr svo aftur til Venezia þar sem hann er samningsbundinn.

Bjarki lék á dögunum sinn fyrsta leik í Serie A þegar hann kom inn á undir lok leiks gegn Sampdoria.

Hann er uppalinn hjá Aftureldingu og lék með ÍA áður en Venezia keypti hann haustið 2020.

Hjá Catanzaro tekur hann þátt í baráttu um að komast upp í B-deildina og er líklegt að hann verði í ansi stóru hlutverki.


Ítalski boltinn - Íslendingar á suðrænum slóðum
Athugasemdir
banner
banner