fös 14. janúar 2022 19:50
Victor Pálsson
Rodgers: Tielemans þarf að skoða alla möguleika
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Leicester, hefur gefið í skyn að það sé stutt í að Youri Tielemans kveðji félagið.

Tielemans á aðeins 18 mánuði eftir af samningi sínum á King Power og er sterklega orðaður við Arsenal.

Belginn hefur spilað með Leicester frá árinu 2019 og skoraði sigurmark liðsins síðasta maí er liðið vann FA bikarinn í leik gegn Chelsea.

„Hann er á þeim aldri og þeim stað samningslega séð að hann þarf að skoða alla möguleika. Ég myndi elska að hafa hann hér í Leicester en ég skil að þetta er stuttur ferill," sagði Rodgers.

„Fyrir leikmennina þá snýst þetta allt um metnaðinn, áskorunina og stundum um annað umhverfi. Við höfum séð þetta margoft."

„Lið hafa unnið Meistaradeildina og misst leikmenn. Þannig virkar þetta. Ég get bara hugsað um að bæta hann sem leikmann og allt annað sér um sig sjálft."

„Ef við missum einn leikmann þá þurfum við að undirbúa það að annar komi inn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner