Fotbolti.net
14.01.26 - 18:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Chelsea og Arsenal: Báðir stjórar gera átta breytingar

William Saliba

William Saliba

Canon

Mynd: EPA

Chelsea og Arsenal mætast á Stamford Bridge í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Liam Rosenior stýrir Chelsea í fyrsta sinn á Stamford Bridge. Hann gerir átta breytingar frá 5-1 sigri gegn Charlton á laugardaginn í enska bikarnum.

Aðeins Josh Acheampong, Andrey Santos og Marc Guiu halda sæti sínu. Cole Palmer, Reece James og Liam Delap eru ekki í hópnum. Moises Caicedo er í banni.

Mikel Arteta gerir einnig átta breytingar frá 4-1 sigri gegn Portsmouth í enska bikarnum. Aðeins Kepa, Ben White og Gabriel halda sæti sínu. William Saliba og Leandro Trossard byrja en þeir voru tæpir fyrir leikinn.
Chelsea: Sanchez, Acheampong, Chalobah, Fofana, Cucurella, Enzo, Santos, Estevao, Joao Pedro, Neto Guiu

Varamenn: Jorgensen, Badiashile, Tosin, Hato, Essugo, Buonanotte, Garnacho, George, Mheuka

Arsenal: Kepa; White, Saliba, Gabriel, Timber; Zubimendi, Rice, Odegaard; Saka, Gyokeres, Trossard

Varamenn: Raya, Jesus, Eze, Martinelli, Norgaard, Madueke, Merino, Havertz, Lewis-Skelly
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.