14.02.13 - 10:36
Magnús Már Einarsson
Lettneskur miðjumaður til ÍA (Staðfest)

Maksims Rafalskis (til hægri) í leik með lettneska landsliðinu gegn Mexíkó árið 2011.

Mynd: Getty Images

ÍA hefur gert tveggja ára samning við lettneska miðjumanninn Maksims Rafalskis en hann hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarna daga.
Skagamenn hafa verið að skoða nokkra miðjumenn að undanförnu til að fylla skarð Jepser Jensen sem sleit krossband í lok síðasta sumars. Þeir hafa síðan núna ákveðið að semja við hinn 28 ára gamla Maksims.
Maksims býr yfir talsverðri reynslu sem leikmaður en hann hefur til að mynda leikið 10 A-landsliðsleiki fyrir Lettland auk þess sem hann lék 17 leiki með lettneska liðinu Daugava Daugavpils sem sigraði í efstu deild þar í landi á síðasta tímabili.
Þar áður lék Maks með liðum á borð við FK Riga og FK Liepajas en með þeim lék hann rúmlega 100 leiki og skoraði í þeim 14 mörk.
,,Við erum virkilega ánægðir að vera búnir að ná samningum við Maks en hann hefur æft með okkur undanfarna daga og staðið sig vel,\" sagði Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri ÍA.
,,Við höfðum verið að lýta í kringum okkur undanfarnar vikur eftir miðjumanni eftir að ljóst varð að Jesper Jensen færi frá okkur. Við erum því mjög ánægðir með komu Maks hingað á Skipaskaga því hann á bæði eftir að styrkja liðið á miðsvæðinu auk þess sem hann mun auka breiddina í okkar mannskap.\"

Heimild: Heimasíða ÍA