Fotbolti.net
14.02.14 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Axel Kári í HK (Staðfest)

Axel Kári er bakvörður en hefur einnig leikið á miðjunni.

Axel Kári er bakvörður en hefur einnig leikið á miðjunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur fengið vinstri bakvörðinn Axel Kára Vignisson til liðs við sig á láni frá Víkingi R.

Axel hefur æft með HK að undanförnu og spilað með liðinu í Fótbolta.net mótinu.
Axel er 23 ára gamall en hann er uppalinn hjá ÍR. Fyrir síðasta tímabil gekk hann til liðs við Víking þar sem hann spilaði tvo leiki.

Um mitt sumar í fyrra fór Axel aftur til ÍR á láni þar sem hann skoraði sex mörk í tíu leikjum í 2. deildinni.

Axel gæti spilað með HK gegn Þrótti þegar liðið mætir HK í fyrsta leik í Lengjubikarnum í kvöld.

HK-ingar hafa verið að styrkja hópinn en í gær komu Viktor Unnar Illugason, Viktor Örn Margeirsson, Steindór Snær Ólason og Runólfur Sveinn Sigmundsson til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.