14.02.14 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Gunnar Wigelund í KV (Staðfest)

Gunnar handsalar samninginn við Pál Kristjánsson, formann KV.

Mynd: KV

KV hefur fengið framherjann Gunnar Wigelund til liðs við sig frá Reyni Sandgerði.
Gunnar hefur æft með KV síðastliðnar vikur og eftir æfingaleik KV og KR í gærkvöldi var gengið frá skiptunum. Leikið var í 45 mínútur og endaði leikurinn 0-0.
Gunnar var öflugur með Reynismönnum í 2. deildinni í fyrra en þá skoraði hann tíu mörk í 22 leikjum.
Að auki skoraði Gunnar átta mörk í þremur bikarleikjum með Sandgerðingum.

Frá 2010-2012 skoraði Gunnar reglulega með KB en hann lék einnig með Leikni hluta sumars árið 2012.
Gunnar gæti leikið sinn fyrsta leik með KV þegar liðið mætir Haukum í fyrsta leik í Lengjubikarnum á morgun.