14.02.14 - 09:15
Hafliði Breiðfjörð
Hollensk landsliðskona í ÍBV (Staðfest)

Eyjastúlkur hafa fengið liðsstyrk frá Hollandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjastúlkur hafa fengið liðsstyrk frá Hollandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag gekk kvennalið ÍBV frá samningi við hollensku landsliðskonuna Kim Dolstra sem leikur með hollenska liðinu Aod Haag.
Kim sem nú hefur fest sig í sessi í landsliðshópi Hollands er miðvörður og kemur til ÍBV strax í næstu viku.
Kim sem er 25 ára gömul var árið 2009 kosin leikmaður ársins í Hollandi.
Eyjakonur eru því komnar með fullskipaðan leikmannahóp fyrir komandi tímabil og eru leikmenn í óða önn að tínast til eyja áður en Lengjubikarinn hefst í lok febrúar.