Fotbolti.net
14.02.14 - 19:44
Hafliði Breiðfjörð

Meulensteen rekinn frá Fulham - Magath tekinn við (Staðfest)

Meulensteen kveður Fulham.

Meulensteen kveður Fulham.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur rekið Rene Meulensteen úr starfi knattspyrnustjóra félagsins og ráðið Felix Magath fyrrverandi stjóra Bayern Munchen í hans stað.
Félagið staðfesti þetta í tilkynningu í kvöld en Meulensteen tók við liðinu í desember síðastliðnum þegar Martin Jol var rekinn frá félaginu. Undir stjórn Meulensteen vann Fulham aðeins þrjá leiki í deildinni en þeir töpuðu 2-3 gegn Liverpool í fyrrakvöld.

,,Þeir hafa ýtt á panic takkann, tilfinningar og ótti spila þarna inni, en hey, svona er bara fótboltinn,\" sagði Meulensteen við BBC í kvöld um brottreksturinn.

Shadid Khan formaður Fulham sagði: ,,Nú þegar 12 leikir eru eftir getum við bara ekki ráðið við úrslit sem skila okkur engu. Það varð að grípa til aðgerða.\"

Magath sem er sextugur skrifaði undir 18 mánaða samning við Fulham. Liðið er í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Hann vann þýsku Bundesliguna þrisvar sem stjóri og síðast með Wolfsburg árið 2009.

Meulensteen var í þjálfarateymi Sir Alex Ferguson hjá Manchester United í 12 ár. Hann stýrði Anzhi Makhachkala í Rússlandi í 16 daga í ágúst.

Undir hans stjórn gerði liðið 2-2 jafntefli við Manchester United á sunnudaginn en 2-3 tapið gegn Liverpool á miðvikudaginn gerði útslagið. Liðið komst tvisvar yfir í þeim leik en fékk á sig tapmarkið úr vítaspyrnu í lokin.

,,Ég vissi alveg að eigendurnir voru að missa sig aðeins og óttast að félagið sé að fara að falla. En við höfðum rætt um að það væri langtíma markmið að koma liðinu ofar og þarna létu þeir óttann ná tökum á sér,\" sagði Meulensteen við BBC í kvöld.

,,Ég hafði ekki fengið langan tíma og þeir sem sáu Manchester United og Liverpool leikina gátu séð hvað ég var að reyna að gera. Mér gæti ekki verið meira sama um hvað þeir settu í yfirlýsingun,\" sagði hann að lokum en félagið nefndi hann ekkert í yfirlýsingunni sem fjallaði um ráðningu Magath.

Meulensteen skilaði sigri í fjórum af 17 leikjum sínum sem knattspyrnustjóri Fulham, 10 töpuðust. Síðasti sigurleikurinn kom á nýársdag.

Magath hefur verði atvinnulaus síðan hann yfirgaf Wolfsburg árið 2012 en hann vann tvisvar tvöfalt með Bayern Munchen í Þýskalandi, þriðji Bundesligutitilinn kom með Wolfsburg árið 2009.

Heimild: BBC

Felix Magath hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Fulham. Hann stýrði Wolfsburg síðast 2012.

Felix Magath hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Fulham. Hann stýrði Wolfsburg síðast 2012.

Canon

Mynd: Getty Images

Frá heimavelli Fulham á miðvikudaginn þegar Liverpool kom í heimsókn.  Þetta reyndist síðasti leikur Rene Meulensteen með liðið en Liverpool vann 2-3.

Frá heimavelli Fulham á miðvikudaginn þegar Liverpool kom í heimsókn. Þetta reyndist síðasti leikur Rene Meulensteen með liðið en Liverpool vann 2-3.

Canon

Mynd: Venni Páer

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.