Fotbolti.net
14.02.20 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjubikarinn: Hilmar Árni afgreiddi Fjölni

Lengjubikarinn: Hilmar Árni afgreiddi Fjölni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir 0 - 2 Stjarnan
0-1 Hilmar Árni Halldórsson ('30)
0-2 Hilmar Árni Halldórsson ('53)
Hilmar Árni Halldórsson lék á als oddi er Stjarnan lagði Fjölni að velli í Lengjubikarnum fyrr í kvöld.

Hilmar skoraði beint úr aukaspyrnu fyrir leikhlé og innsiglaði sigur Garðbæinga eftir stoðsendingu frá Emil Atlasyni snemma í síðari hálfleik. Emil kom frá HK í vetur.

Hann komst nálægt því að bæta við þriðja markinu undir lokin en skaut þá í stöng úr aukaspyrnu.

FH lagði þá Þrótt R. að velli á sama tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.