14.02.22 - 15:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frá Fjölni í topplið skosku Championship (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Michael Bakare gekk í raðir Fjölnis í sumarglugganum á síðasta tímabili. Bakare er 35 ára enskur sóknarmaður sem farið hefur víða á sínum ferli, skipt rúmlega tuttugu sinnum um félag.
Hann er búinn að finna sér lið í Skotlandi en á heimasíðu KSÍ sést að hann er kominn með leikheimild þar í landi. Liðið sem Bakare samdi við heitir Arbroath FC og spilar í næstefstu deild, Championship-deildinni.

Á síðasta tímabili skoraði Bakare fjögur mörk í ellefu leikjum með Fjölni í Lengjudeildinni.
Hann hefur flakkað um í neðri deildunum á Englandi og einnig spilað í Wales.
Arbroath er í toppsæti deildarinnar og stefnir upp í úrvalsdeildina.
Umræða um Bakare:
Jóhann Árni, í bland við Bakare, kveikt neistann aftur (3. ágúst)
Viðtal við Bakare (15. júlí)