Fotbolti.net
14.02.22 - 13:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

KR lánar efnilega leikmenn í KV (Staðfest)

Grímur Ingi með U17 landsliðinu árið 2020.

Grímur Ingi með U17 landsliðinu árið 2020.

Canon

Mynd: Hulda Margrét

Lengjudeildin
KR hefur lánað nokkra unga og efnilega leikmenn til venslafélags síns KV. KV komst upp í Lengjudeildina með því að enda í 2. sæti 2. deildar á síðasta tímabili.

Leikmennirnir sem eru komnir með tímabundin félagaskipti í KV eru þeir Grímur Ingi Jakobsson, Hrafn Tómasson, Styrmir Máni Kárason og Ómar Castaldo Einarsson.
Þeir Grímur, Styrmir og Ómar léku með KV í fyrra og Hrafn lék með öðrum flokki KR/KV.

Grímur Ingi (2003) er unglingalandsliðsmaður sem gekk í raðir KR fyrir tímabilið 2021. Hann er uppalinn í Gróttu og lék þrjá leiki í efstu deild sumarið 2020. Hann á tíu unglingalandsleiki að baki og skoraði fimm mörk í 2. deildinni í fyrra.

Styrmir Máni (2004) er uppalinn KR-ingur sem lék þrjá leiki með KV í fyrra og spilaði einnig með 2. flokki þar sem hann skoraði átta deildarmörk í fyrra.

Ómar Castaldo (2001) er markvörður sem var valinn næstbesti makrvörður 2. deildar í fyrra. Hann á að baki fimm unglingalandsleiki og hefur varið mark KV undanfarin tvö tímabil.

Hrafn (2003) lék eins og fyrr segir með 2. flokki í fyrra en kom tvisvar við sögu í Reykjavíkurmótinu með KR í janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.