Fotbolti.net
14.02.22 - 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tælensk landsliðskona í Selfoss (Staðfest) - Þekkir Bjössa og Sif

Tælensk landsliðskona í Selfoss (Staðfest) - Þekkir Bjössa og Sif
Canon

Mynd: California Golden Bears

Kvennaboltinn
Selfoss hefur samið við tælensku landsliðskonuna Miranda Nild. Hún er 25 ára sóknarmaður sem var síðast á mála hjá Kristianstad í Svíþjóð.

Hjá Kristianstad lék hún undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur og Björns Sigurbjörnssonar en Björn tók við sem þjálfari Selfoss eftir síðasta tímabil. Hjá sænska félaginu lék hún með Sif Atladóttur sem einnig er mætt á Selfoss.
Nild lék með Kristianstad sem lánsmaður frá bandaríska úrvalsdeildarliðinu OL Reign en hún hóf atvinnumannaferilinn með FC Gintra í Litháen árið 2019.

Miranda Nild er fædd í Bandaríkjunum en faðir hennar er frá Tælandi og var hún fyrst valin í tælenska landsliðið árið 2017. Hún hefur leikið 20 A-landsleiki fyrir Tæland og skorað í þeim 15 mörk.

„Miranda er mjög alhliða sóknarmaður sem spilaði síðasta tímabil hjá mér í Kristianstad. Ég veit að hverju ég geng með því að fá hana hingað. Hún er mjög skemmtileg týpa, bæði á vellinum og fyrir utan hann. Hún er með góða tækni, róleg á boltanum og með gott skot í báðum fótum. Ég er alveg viss um að hún á eftir að koma að einhverjum mörkum og gefa okkur aukna breidd og aukin gæði í sóknarleik okkar,“ segir Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss.

Komnar
Ásta Sól Stefánsdóttir frá Haukum
Íris Una Þórðardóttir frá Fylki
Katla María Þórðardóttir frá Fylki
Miranda Nild frá Bandaríkjunum
Sif Atladóttir frá Svíþjóð
Barbára Sól Gísladóttir frá Danmörku (var á láni)

Farnar
Anna María Bergþórsdóttir í Fjölni
Emma Kay Checker til Ástralíu
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.